Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Ný einbýlishús á Vistabella Golf Resort
Þessi glæsilegu nýbyggðu einbýlishús eru staðsett á Vistabella Golf Resort í Orihuela, á milli San Miguel de Salinas og Los Montesinos. Í boði eru hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og einkasólpalli á þaki, eða tveggja hæða hús með 4 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og verönd á efri hæð. Öll húsin standa á um 300 m² lóðum og eru með einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Húsin eru afhent með fullbúnu eldhúsi og heimilistækjum, loftkælingu, rafdrifnum gluggatjöldum, útilýsingu og fullbúnum baðherbergjum með sturtugleri og vönduðum innréttingum.
Vistabella Golf Resort er lokaður golfkjarni með 18 holu golfvelli, padelvöllum, matvöruverslun, veitingastöðum og annarri þjónustu. Strendur La Mata og Guardamar del Segura eru í um 20 km fjarlægð, Torrevieja í um 15 km og Alicante-flugvöllur í um 55 km. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem leita að nútímalegu heimili eða orlofseign á vinsælum stað við golfvöll á Costa Blanca.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/6624/ny-einbylishus-a-vistabella-golf-resort/
Ref: NB-43177
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Ný einbýlishús á Vistabella Golf Resort
Allar 11 myndir
Upp ↑









