Um eignina
Um er að ræða um 670 fm stálgrindarhús, ásamt óskráðu millilofti sem er um 130 fm að stærð. Eignin er á lóð sem er 3.576 fm, og samkvæmt deiliskipulagi er nýtingarhlutfall lóðar 0,3. Af því leiðir að byggja má um 400 fm til viðbótar á lóðinni.
Eignin er með um 10m lofthæð og nýlegu ca. 80 fm skrifstofu- og starfsmannarými sem var sérhannað fyrir eignina. Ofan á því rými má byggja aukalega eina hæð en rýmið er sérstaklega styrkt og hannað til að þola þungann af annarri hæð. Í skrifstofu- og starfsmannarýminu er sérlega góð aðstaða fyrir starfsmenn, auk eldhúss og kaffistofu. Skrifstofu aðstaðan rúmar vel 3-4 starfsmenn en það rými er mjög snyrtilegt með gluggum og parketlagt.
Eignin hefur nánast verið endurnýjuð að öllu leyti:
*Nýtt rafmagn er í eigninni (ný tafla, nýtt rafmagnsinntak og led lýsing),
*Allar hitalagnir hafa verið endurnýjaðar,
*Húsið er klætt að utan með nýjum yleiningum,
*Þak hefur verið yfirfarið og málað,
*Nýjar hurðir, þar af eru tvær háar og breiðar. Þá eru nýjar innkeyrsluhurðir í eigninni sem eru báðar rafdrifnar.
Í eigninni er öflugur brúarkrani (hlaupaköttur) fyrir miðju húsi, með allt að 5 tonna lyftigetu. Þá er önnur lyfta í enda hússins.
Lóðin er malbikuð og girt af að hluta.
Einstakt tækifæri á góðum stað. Mögulegt er að fá enn stærri lóð.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
____________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Klettatröð 4
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























