Um eignina
Fallegt verslunarrými/vinnustofa á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur, gengið inn á horni Nönnugötu og Njarðargötu. Um er að ræða 39 fm vinnustofu sem er öll endurnýjuð, með baðherbergi og kaffiaðstöðu. Góðir verslunargluggar og sérinngangur frá horni Nönnugötu og Njarðargötu. Aukin lofthæð er í allri eigninni eða um 2,8 metrar.
Eignin er laus til afhendingar nú þegar.
Nánari lýsing eignar:
Alrými sem gengið er inn í um sérinngang frá horni Nönnugötu og Njarðargötu. Rýmið er bjart með góðum gluggum til suðurs, parketlagt og með mikilli lofthæð. Baðherbergi með walk in sturtu og upphengdu salerni, flísar á gólfi og inni í sturtu. Kaffiaðstaða innst í rými með nettri innréttingu. Allt endurnýjað árið 2026.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara hússins með glugga, lakkað gólf og vaskur. Sértenglar fyrir hverja íbúð og nýleg lagnagrind. Rafmagnstafla í sameign hefur verið endurnýjuð ásamt lagnagrind.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, Háskóla Íslands, Sundhöll Reykjavíkur og allt það sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat
Nönnugata 16 vinnustofa
Staðsetning
Allar 7 myndir
Upp ↑





