fasteignasölur.is
Rafstöðvarvegur 1
1 af 17

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega spennandi eign að Rafstöðvarvegi 1,  229.2 fm endabil með góðri lofthæð. Möguleiki á að kaupa fyrirtækið með öllum rekstri sem býður uppá ýmsa möguleika. Eignin skiptist í móttöku, stóran sal og þar innaf eldhús, tvö baðherbergi og fín aðstaða. Milliloft með útgengi út á skjólgóða verönd.

Nánar:
Næg bílastæði fyrir framan eignina. Gengið beint inn í rúmgóða móttöku, hátt til lofts í öllu rými. Stór salur sem í dag er nýttur undir heilsutengda þjónustu. Þar innaf er búið að útbúa góða aðstöðu með eldhúseyju og tveim baðherbergjum. Húsnæðið býður uppá stækkun líkt og er á hinum enda hússins þar sem búið er að opna hliðina og er þar veitingarekstur.
Rafstöðvarvegur 1A eru gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekkunni.  Byggingin er braggalaga og eru 7 braggar samliggjandi.  Rýmið sem til sölu er við enda að Ártúnsbrekkunni. Möguleiki á að kaupa rekstur með öllu því sem er til staðar.

Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 839-1600, tölvupóstur gunnarbergmann@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Rafstöðvarvegur 1

110 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði1 svefn · 2 bað
Byggingarár1946TegundAtvinnuhúsnæðiStærð229,2 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20433135Fasteignamat64.500.000 kr.Brunabótamat101.500.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑