fasteignasölur.is
Framnesvegur 20-22
1 af 22

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð í lyftuhúsi.  Eigninni fylgir rúmgóð geymsla, yfirbyggðar svalir og stæði í bílahúsi.
Birt stærð eignarinnar er 89,4fm. 
Húsið var tekið í gegn að utan sumarið 2023: Múrviðgerðir, veggir háþrýstiþvegnir, sílaðir og málaðir. Þak var yfirfarið og málað og hluti sameignar málaður. 


------ Frábært útsýni frá eigninni til suðurs og vesturs ------

Snyrtileg sameign að lyftu, sjalfvirk rennihurð er inn í forstofu hússins.
Forstofa er parketlögð og þar er góður skápur.
Stofa er parketlögð. Gengið er út á yfirbyggðar svalir frá stofu.
Eldhús hefur parket á gólfi, þar er snyrtileg eikar-innrétting ásamt góðum tækjum. Innbyggð uppþvottavél fylgir með eigninni. Eldhús og stofa liggja saman í björtu rými.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, þar er baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús er inn af baðherbergi, þar eru flísar á gólfi. 
Svefnherbergin hafa parket á gólfi og góður skápur er í hjónaherbergi. Búið er að opna á milli herbergis og stofu svo stofa er mjög rúmgóð.Auðvelt að breyta aftur. 

*Frábært útsýni frá yfirbyggðum lokuðum svölum.
*Sérmerkt stæði í bílageymslu.
*Sér geymsla fylgir eigninni. 
*Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
*Örstutt í fallegar gönguleiðir meðfram sjónum.

Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Magnússon lfs.
s. 863-4495 / 420-4000
dori@studlaberg.is


 

Framnesvegur 20-22

230 Reykjanesbær
74.500.000 kr.833 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð89,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22547453Fasteignamat61.100.000 kr.Brunabótamat52.710.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑