fasteignasölur.is
Glaðheimar 14a
Opið hús í dag kl. 17:30–18:00
1 af 14

Um eignina

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: góða 2ja herbergja íbúð á miðhæð hússins að Glaðheimum 14a, 104 Reykjavík.

> Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting
> Suðursvalir
> Húsið stendur innst í botnlanga á mjög rólegum stað
> Næg bílastæði
> Gróið hverfi rétt við Laugardalinn
> Frábær fyrstu kaup


Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur.
Komið inn á gang, sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Eldhús: með rúmgóðri L-laga innréttingu og borðkrók. Tengt fyrir uppþvottavél. Innréttingin var endurnýjuð fyrir 6 mánuðum að sögn seljanda.
Stofa: snýr að bakgarði og er með svalir í suður.
Svefnherbergi: er bjart með lausum fataskáp, sem fylgir.
Baðherbergi: klósett, handlaug & sturtuklefi ásamt opnanlegum glugga. Sturtuklefi ásamt handlaug/skáp var endurnýjað nýlega, að sögn seljanda.

Sér geymsla á jarðhæðinni.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæðinni, hver með sína vél

Lóðin er sameiginleg. 
Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur gildir frá 1968 til 75 ára.
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð merkt 01-02-01, birt stærð er 53,1 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 2,8 fm. Heildarstærð er 55,9 fm. Svalir eru 3,1 fm. Húsið var  byggt 1960.

Stutt í þjónustu, verslanir, skóla og sundlaug.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Bær
55.800.000 kr.998 þ./m²
+129,6% á 10 árum
29. júlí 2016Þinglýstur kaupsamningur
24.300.000 kr.435 þ./m²
+94,4% á 10 árum
8. nóvember 2006Fyrsta sala
12.500.000 kr.224 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Glaðheimar 14a

104 Reykjavík
55.800.000 kr.998 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1960TegundFjölbýlishúsStærð55,9 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20218151Fasteignamat50.500.000 kr.Brunabótamat28.400.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Bær
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑