fasteignasölur.is
Haðarstígur 15
1 af 39

Um eignina

Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjað, fallegt einbýlishús á frábærum stað við Haðarstíg í 101 Reykjavík. Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara. Á aðalhæð eru forstofa, stofa og eldhús. Á annari hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi og í kjallara er þvottahús, stofa, geymsla og baðrými með baðkari. Haðarstígur er vistgata og umhverfið er heillandi og metnaður eigenda lagður í að halda húsum við í anda byggingartíma þeirra.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.

Aðalhæð: Rúmgóð forstofa með nýlegum flísum. Aðalhæðin er mikið til opið alrými með fallegri og bjartri stofu, setustofu og eldhúsi.
Stofan og borðstofa eru með fallega glugga á 3 vegu sem tryggja góða birtu inn í rýmið.
Eldhús er með nýrri danskri Kvik innréttingu og gaseldavél frá Kokku, háfur yfir henni. Innbyggður ísskápur og frystir frá Siemens. Marmari frá S.Helgason á borðum.

Fallegur viðarstigi er milli hæðanna og nýtt gegnheilt eikargólf á stofu og kjallara.

Efri hæð: Baðherbergi sem var endurnýjað á smekklegan hátt fyrir tveimur árum síðan, það er með gegnum birtu og ný uppgerðri "walk-in" sturtu.

Tvö barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með útengi á suðursvalir.

Í kjallara er þvottaherbergi, geymsla, stofa auk baðrýmis við hlaðinn vegg. Baðkar þar er ótengt.

Skv. seljanda var húsið  endurnýjað að innan á árunum 2014-15, m.a. voru allar vatnslangir (heitt og kalt vatn) og inntak  út í götu endurnýjuð, veggir færðir til eða rými opnuð og stigi milli hæðanna sér smíðaður þannig að samræmi og flæði næðist milli allra þriggja hæðanna. Baðherbergi á efri hæð var algerlega endurnýjað (búið til) á þeim tíma. Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar 2024. Þá var kjallarinn dýpkaður og gólf steypt með hitalögn undir, undirstöður styrktar og grafið frá bakhlið til að koma að bakdyra inngangi.

Nánari upplýsingar veitir: Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali: vidar@miklaborg.is, s. 6941401.




Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
145.000.000 kr.997 þ./m²
+271,8% á 12 árum
12. mars 2014Þinglýstur kaupsamningur
39.000.000 kr.268 þ./m²
+13,0% á 7 árum
7. febrúar 2007Fyrsta sala
34.500.000 kr.237 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Haðarstígur 15

101 Reykjavík
145.000.000 kr.997 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1923TegundFjölbýlishúsStærð145,4 m²Herbergi6InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2007804Fasteignamat112.250.000 kr.Brunabótamat76.600.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑