Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Glæsileg eign í San Miguel de Salinas – frábært verð
Við hjá Perla Investments kynnum einstaka eign á besta stað í San Miguel de Salinas, í göngufæri við allar helstu þjónustur og flotta veitingastaði.
Eignin er stór og björt, alls 206 m² að stærð. Íbúðin samanstendur af fimm svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, ásamt rúmgóðri stofu / eldhúsi í ekta spænskum stíl. Eigninni fylgja stórar þaksvalir með sem snúa í suður og býður upp á fallegt útsýni yfir San Miguel og nær liggjandi sveitir.
Eldhúsið er stórt og vel útbúið með miklu skápaplássi. Þar að auki er stór bílskúr sem fylgir einnig og er stæði fyrir allt að 3 ökutæki og einnig er mjög stór geymsla í bílakjallaranum
Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er nálægt – með yfir 80.000 m² af verslunarhúsnæði og fjölbreyttu úrvali verslana og veitingastaða. Þá er einnig Torrevieja háskólasjúkrahúsið, eitt það fremsta á svæðinu, einungis í um 15 mínútna akstursfjarlægð.
Ef golf er ástríða þín, þá ertu á réttum stað – innan við 8 km radíus eru fjórir 18 holu golfvellir: Villamartín, Real Club de Golf Campoamor, Las Ramblas og hinn verðlaunaði Las Colinas golfvöllur.
Fyrir sólarunnendur eru víðfeðmar sandstrendur aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð, allar með Bláa fánanum – merki um fyrsta flokks aðstöðu, hreina strönd og gæða sjávarvatn.
Ekki hika við að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/6897/glaesileg-eign-i-san-miguel-de-salinas-frabaert-verd/
Ref: V867
Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með gistingu
Perla Inv. -Glæsileg eign í San Miguel de Salinas
Allar 22 myndir
Upp ↑




















