fasteignasölur.is
Perla Inv. - Raðhús með 3 svefnherbergjum í Vistabella
1 af 7

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir:

Raðhús með 3 svefnherbergjum í Vistabella

Fallegt raðhús á frábærum stað við hinn glæsilega 18 holu Vistabella Golfvöll. Svæðið í kring er sannkölluð paradís þar sem allar helstu þjónustur eru í nágrenninu, svo sem apótek, matvöruverslanir, veitingahús og bari. Einnig er mikið af afþreyingu á svæðinu, þar á meðal paddle tennisvöllum, bocce völlum og golfkennsla fyrir áhugasama.

Þetta fallega raðhús er 95,95 m² á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er baðherbergi, rúmgott svefnherbergi, björt stofa með opnu eldhúsi og verönd að framan. Á annarri hæð er glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi, auk svefnherbergis og baðherbergis. Þar er einnig hægt að ganga út á svalir og fara þaðan upp á 35 m² þaksvalir með ótrúlegu útsýni.

Í sameigninni er stór og falleg sundlaug sem og leiksvæði fyrir börn.

Bílastæði fylgir eigninni.

Við bjóðum upp á mikið úrval annarra fasteigna til sölu í þessu frábæra hverfi.

Gæði eignanna, staðsetningin og nálægð við allar helstu þjónustur gera þær að hinum fullkomna áfangastað, hvort sem er fyrir skammtíma eða langtíma dvalar.

Auk allrar þeirra þjónustu sem Vistabella Golf býður upp á, er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin aðeins stutt frá, þar sem þú finnur fjölbreytt úrval verslana í meira en 80.000 m² verslunarhúsnæði. Þá er einnig heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni, þar sem Torrevieja spítali, sem þekktur er fyrir sína framúrskarandi þjónustu, er aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.

Ef þú hefur áhuga á golfi, þá ertu á réttum stað. Vistabella Golf er þinn heimavöllur, en einnig eru 8 átján holu vellir í næsta nágrenni, innan við 20 mínútna akstursfjarlægð. Fyrir sólarunnendur er þetta einnig draumastaður, þar sem þú ert aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá breiðum sandströndum, sem hafa hlotið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu, með Bláa fánanum sem merki um framúrskarandi aðstöðu.

Hafðu endilega samband til að fá frekari upplýsingar um þessa eign.Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar https://perlainvest.com/eign/6671/radhus-med-3-svefnherbergjum-i-vistabella/                              

Ref: NB-19455

Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu.  Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Raðhús með 3 svefnherbergjum í Vistabella

1053 Spánn - Costa Blanca
45.200.000 kr.471 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 3 bað
Byggingarár2026TegundFjölbýlishúsStærð96 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 7 myndir

Upp ↑