fasteignasölur.is
Mosarimi 5
1 af 216

Um eignina

**Eignin er komin aftur á sölu vegna fyrirvara sem féll**


SÉRINNGANGUR / SUÐUR SVALIR / SÉRMERKT BÍLASTÆÐI

Móeiður Svala og Miklaborg kynna í einkasölu: Afar fallega og vel skipulagða 79 fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi í litlu og snyrtilegu fjölbýli í fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Eignin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús, bjarta stofu með útgengi á suður svalir, rúmgott hol sem hentar vel sem sjónvarpshol eða skrifstofuaðstaða og sér geymslu innan íbúðar.

***Húsfélagið vel stætt og 2 ný hleðslustæði hafa einnig verið sett upp fyrir framan**


**Eignin getur verið laus mjög fljótlega**


Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í: forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, hol, geymslu innan íbúðar og svalir.


Forstofa: Flísalögð með góðu plássi fyrir yfirhafnir og skó.

Stofa: Björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi og útgengi á suður svalir sem njóta sólar yfir allan daginn.

Eldhús: Opið inn í stofu með fallegri innréttingu.

Svefnherbergin: Eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi en hjónaherbergið er með góðum fataskápum.

Hol: Rúmgott og nýtist einstaklega vel sem sjónvarpshol, leiksvæði eða heimaskrifstofa.

Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu (nýtt gler), innréttingu við vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Innan íbúðar.


Í sameign er hjólageymsla og eigninni fylgja afnot af sérmerktu bílastæði.

***2 ný hleðslustæði hafa einnig verið sett upp fyrir framan**


Um er að ræða fjölskylduvæna staðsetningu í Grafarvogi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, þjónustu, íþróttasvæði og fallegar göngu- og hjólaleiðir.

Eign sem hentar einstaklega vel fyrir fyrstu kaupendur, ungar fjölskyldur eða þá sem leita að vel skipulagðri íbúð á vinsælum stað.


Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
69.500.000 kr.879 þ./m²
+28,7% á 4 árum
20. janúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
54.000.000 kr.683 þ./m²
+50,0% á 5 árum
15. september 2017Þinglýstur kaupsamningur
36.000.000 kr.455 þ./m²
+26,3% á 1 ári
8. júlí 2016Fyrsta sala
28.500.000 kr.360 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mosarimi 5

112 Reykjavík
69.500.000 kr.879 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1993TegundFjölbýlishúsStærð79,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2216789Fasteignamat60.900.000 kr.Brunabótamat41.550.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 216 myndir

Upp ↑