fasteignasölur.is
Nönnugata 16
1 af 15

Um eignina

Vel staðsett 2ja herbergja íbúð við Nönnugötu — frábær fyrstu kaup í hjarta 101
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 58,2 m² tveggja herbergja íbúð á 1. hæð við Nönnugötu 16 í hjarta Reykjavíkur. Um er að ræða frábær fyrstu kaup á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar, í rótgrónu steinsteyptu fjölbýli frá árinu 1930. 

-  Frábær fyrstu kaup
-  Miðsvæðis í 101 í göngufæri við alla helstu þjónustu 


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er skráð 58,2 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 49,8 fm og sérgeymsla í kjallara 8,4 fm.
Húsið er steinsteypt fjölbýlishús frá 1930 með átta íbúðum. Húsfélagsgjöld eru 13.248 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur, hita, rafmagn í sameign, húseigandatryggingu og þrif á sameign og sorpgeymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa og gangur eru með parketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru samliggjandi með parketi á gólfi og eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu og málað gólf.
Sérgeymsla, 8,4 m², fylgir íbúðinni í kjallara.

Sameign og umhverfi:
Sameiginlegt þvottahús er í húsinu. Húsfélagið er virkt, framkvæmdasjóður stendur vel og engar skuldir eru á húsfélaginu. Nönnugata er í grónu og eftirsóttu hverfi í Þingholtunum, í göngufæri við miðbæinn, Tjörnina, Hljómskálagarðinn, kaffihús, veitingastaði, verslanir og fjölbreytta þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Háborg fasteignasala
55.900.000 kr.960 þ./m²
+77,5% á 8 árum
12. júlí 2018Fyrsta sala
31.500.000 kr.541 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Nönnugata 16

101 Reykjavík
55.900.000 kr.960 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1930TegundFjölbýlishúsStærð58,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20077274Fasteignamat53.950.000 kr.Brunabótamat33.000.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑