fasteignasölur.is
Erluás 2
1 af 39

Um eignina

Nýtt í sölu! Erluás 2 í Hafnarfirði - Glæsileg 3ja herb. útsýnisíbúð með sér þvottaherbergi inn af íbúð.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 91,5 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð með rúmgóðum svölum til vesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Erluás 2 í Hafnarfirði.  Alrými er opið og bjart með stórum gólfsíðum gluggum til vesturs og útgengi á svalir með glæsilegu útsýni út á sundin, til fjalla og víðar. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð ásamt vagnageymslu og hjólageymslu. Sérinngangur af opnum svalagangi.


Húsið er staðsett á frábærum stað með afar glæsilegu og miklu útsýni. Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Hellulagðar stéttir fyrir framan hús með snjóbræðslu.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum (Tjarnarás og Stekkjarás). Stutt í útivistarparadís með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Hvaleyrarvatni, Ástjörn og víðar.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og skápum. Gengið inn um sérinngang frá svalagangi.
Gangur: Með harðparketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, björt og með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gólfsíðir gluggar til vesturs með miklu útsýni og útgengi á svalir.
Svalir: Með viðarfjölum á svalagólfi og glæsilegu útsýni út á sundin og til fjalla.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og opið að hluta við stofu. Falleg eldhúsinnrétting með stál bakaraofni, helluborð og innb. uppþvottavél. Góður borðkrókur með gólfsíðum gluggum til austurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum á heilan vegg og glugga til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum, falleg innrétting við vask og upphengdu salerni.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og vinnuborði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.

Geymsla: Er staðsett á jarðhæð og er 7,3 fermetrar að stærð.
Vagna- og hjólageymsla: Er sameiginleg og er staðsett á jarðhæð.

Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Að sögn húsfélags/eiganda þá voru eftirtaldar viðhaldsaðgerðir gerðar á árunum 2022-2023: Léttur háþrýstirþvottur á öllum veggjum hússins - Viðgerðir á steiningu þar sem þörf var á - Viðgerðir á vatnsbrettum við glugga - Húsið sílanborið (einnig svalagólf hússins) - Handlistar svalahandriða pússaðir upp og borið á þá - Skipt um hurðir sem voru komnar á tíma - Endurþéttingar á gluggum þar sem var þörf á og komið fyrir ál-þynnum yfir þéttingar - Farið yfir opnanleg fög og þéttingar bættar - Sameignarhurðir endurmálaðar - Gluggar og svalahurðir endurmálaðar að undirgenginni undirvinnu - Viðgerðir á þakpappa - Flasningar á þakkanti ryðvarðar og málaðar - Gert við þakkant þar sem var þörf á - Menjað yfir ryð á þaktúðum. Auk þess var komið upp tveimur rafhleðslustöðvum á bílaplani hússins árið 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali / 849-0672 / heimir@fastlind.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
71.900.000 kr.786 þ./m²
+53,0% á 5 árum
22. mars 2021Þinglýstur kaupsamningur
47.000.000 kr.514 þ./m²
+95,0% á 13 árum
24. október 2007Fyrsta sala
24.100.000 kr.263 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Erluás 2

221 Hafnarfjörður
71.900.000 kr.786 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð91,5 m²Herbergi3InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF22542421Fasteignamat65.850.000 kr.Brunabótamat48.800.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑