fasteignasölur.is
Austurbrú 12 íbúð 302
1 af 21

Um eignina

Austurbrú 12 íbúð 302 - Glæsileg þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í nýbyggingu - Stærð 103 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Smelltu hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.

Við inngang er bjart og opið anddyri með góðum skápum sem setur fallegan svip á eignina. Frá anddyrinu opnast einstaklega fallegt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman í eitt heildstætt og glæsilegt rými.
Eldhúsið er sérlega vandað með fallegri innréttingu, kvartssteini á borðplötum og rúmgóðri eldhúseyju með innbyggðu spanhelluborði. Innfelldur vaskur, bakaraofn í vinnuhæð og hágæða frágangur undirstrika lúxusinn. Allar skúffur og skápar eru með ljúflokum sem tryggja þægindi og hljóðláta notkun. Innfelld lýsing frá Lumex skapar hlýlegt og nútímalegt yfirbragð.
Frá stofu og borðstofu er útgengt á rúmgóðar svalir til suðurs þar sem njóta má sólar og góðra útivistarstunda í skjólsælu umhverfi.
Hjónaherbergið er rúmgott og vel skipulagt með góðum tvöföldum fataskáp. Þaðan er útgengt á skjólgóðar svalir til norðurs með einstöku útsýni yfir Sigurhæð og Akureyrarkirkju, sem gefur eigninni sérstakan sjarma. Barnaherbergið er bjart og notalegt með innbyggðum skáp.
Baðherbergið er einstaklega glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu frá Parka og kvartssteini á borðplötu. Stór sturta með glerskilrúmi og upphengt salerni undirstrika vandaðan frágang og nútímalega hönnun.
Þvottahúsið er einnig flísalagt og afar vel útbúið með sérsmíðuðum skápum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt fallegri kvartssteinsborðplötu sem eykur bæði notagildi og útlit rýmisins.

Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu sem og sérgeymsla, 11,3 m², í sameign. 

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni með harðparketti að stærstum hluta, flísar eru á baðherbergi og þvottahúsi.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Austurbrú 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
 

Austurbrú 12 íbúð 302

600 Akureyri
110.750.000 kr.1.075 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð103 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25313522Fasteignamat76.100.000 kr.Brunabótamat74.800.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑