fasteignasölur.is
Hjallastræti 35
1 af 25

Um eignina

***Hjallastræti 35, 415 Bolungarvík***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Hjallastræti 35, 415 Bolungarvík. Fallegt fimm herbergja einbýli á einni hæð og skráð skv HMS 198,3 fm, þar af er bílskúr 40,3. Lóðin er stór og afgirt að hluta til með timbur girðingu. Garðurinn er gróinn og fallegur.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með fataskáp. Þaðan er gengið inn á gang með parketi á gólfi. Stofa og borstofa eru í sama rými með tengingu við rúmgott eldhús með innréttingu. Úr eldhúsi er innangengt í þvottahús með útgengi á baklóð. Úr stofu innangengt í sólstofu sem búið er að setja hefðbundið þak á. Svefnherbergin eru fjögur og í sér rými með baðherberginu. Sjónvarpshol tengir saman svefnherbergin fjögur og baðherbergið, sem er með sturtuklefa og innréttingu. Öll svefnherbergin eru með fataskápum.
Parket er á öllum gólfum nema forstofu, þvottahúsi og baðherbergi en þar eru flísar.
Bílskúrinn er með bílskúrshurð og inngöngu hurð við hliðiná. Undir bílskúrnum er óskráð rými, jafnstór og bílskúrinn, með inngönguhurð.

Áhugaverð eign sem vert er að koma að skoða.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***

 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignaland
62.000.000 kr.313 þ./m²
+376,9% á 20 árum
13. september 2006Fyrsta sala
13.000.000 kr.66 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hjallastræti 35

415 Bolungarvík
62.000.000 kr.313 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1977TegundEinbýlishúsStærð198,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21213361Fasteignamat51.150.000 kr.Brunabótamat102.950.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑