fasteignasölur.is
Grensás 30
1 af 18

Um eignina

Grensás 30 805 Selfoss.  Sumarhús í byggingu.

Fasteignaland kynnir:  Sumarhús í byggingu í landi Búrfells II.  Um ræða 102 fm hús samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun við Grensás 30.  Húsið verður með ál/tré gluggum. Klætt með bandsöguðu efni. Steypt plata með hitalögnum og gert ráð fyrir að í húsinu verði varmadæla loft í vatn.  Húsið afhendist með sólpalli.  Frágangur á þaki lokið þ.e.a.s þak klætt með torfi. bílastæði og aðkoma frágengin.
Að innan afhendist húsið plastað og einangrað og rafmagnsgrind komin. Möguleiki er að fá húsið lengra komið. Heimtaugagjöld fyrir kalt vatn og rafmagn verða greidd og rotþró frágengin..

Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir forstofu, tæknirými, geymslu, tveimur baðherbergjum, annað inn af hjónaherbergi. Þrjú góð herbergi og stofa og eldhús í sama rými með góðri lofthæð.  Í þessu húsi er gert ráð fyrir skriðlofti, (svefnlofti).

Lóðin er 4540 fm eignarlóð með fallegu útsýni. 
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er kr. 25.000 á ári. 

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Grensás 30

805 Selfoss (dreifbýli)
49.900.000 kr.489 þ./m²
Sumarhús
TegundSumarhúsStærð102 m²Herbergi4FasteignanúmerF23440963Fasteignamat2.940.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑