fasteignasölur.is
Kringlumýrarvegur 6
1 af 45

Um eignina

Kringlumýrarvegur í landi Norðurkots i Grímsnes-og Grafningshreppi. Hitaveita, lokað svæði. 

Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Kringlumýrarveg í Grímsnes-og Grafningshrepp. Um er að ræða 55,1 fm sumarhús ásamt 19,6  fm tvískiptu húsi sem er geymsla/gestahús eða samtals 74,7 fm samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Auk þess er eitt gróðurhús á lóðinni og dúkkuhús. Í þessu húsi er hitaveita og steypt plata með gólfhita og einnig lokað ofnakerfi. Það á einnig við gestahúsið. Lóðin er 2.340 fm eignarlóð skógi vaxin.

Lýsing á eign: Hol með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, annað herbergið með litilli forstofu þar sem hægt er að ganga út á suður sólpall. Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri hvítri innréttingu og sturtu. Stofan er L-laga með flísum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með flísum á gólfi, viðarinnréttingu með ofni, helluborði með tveimur hellum og uppþvottavél. Stór eldhúskrókur. Allir gluggar og hurðir eru úr harðviði (maghóní).  

Geymsla: Áföst gestahúsi, steypt plata með hitalögn í gólfi.
Gestahús: Alrými með flísum á gólfi og eldhúskrók. Baðherbergi. Gólfhiti.

Steyptir sökklar liggja á milli aðalhúss og gestahúss og því auðvelt að byggja þar á milli. Teikning af skála þar á milli er til.

Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Á lóðinni er gróðurhús.

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Þetta er falleg eign og vel um gengið hús. Góð aðkoma og næg bílastæði.

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
 

Kringlumýrarvegur 6

805 Selfoss (dreifbýli)
52.500.000 kr.703 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2007TegundSumarhúsStærð74,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF230204112Fasteignamat49.950.000 kr.Brunabótamat43.520.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑