fasteignasölur.is
Kristnibraut 4
1 af 28

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð 97,5 fm 3ja herberja íbúð á þriðju hæð, (efstu) í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Grafarholti. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og fallega náttúru. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar.
Nýlega (2023) var húsið málað og múrviðgert. Þá voru gluggar einnig lagfærði þar sem þurfti. Skipt var um dúk á þaki árið 2020 að sögn eiganda.


Nánari lýsing íbúðar:
Íbúðin er 3ja herbergja og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa: komið er inn á forstofugang með parketi á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Eldhús: Eldhús eignarinnar er rúmgott og er opið inn í borðstofu. Viðarinnréttingar sem ná upp í loft og gott skápapláss. Gluggi er í eldhúsi og er parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofurnar liggja saman og eru mjög rúmgóðar og bjartar, (samtals um 46 fm). Útgengt er á stórar svalir með miklu útsýni út í náttúru og yfir borgina. Parket á gólfum. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er stórum fataskápum sem ná upp í loft og parket á gólfi. Mikið útsýni er frá svefnherbergjum. 
Barnaherbergi: Barnaherbergi með fataskáp sem nær upp í loft og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Ljósar flísar eru á veggjum og gólfi. Ljós innrétting er við vask og glerskápur fyrir ofan.  Baðkar með sturtu aðstöðu og upphengt salerni. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús: innan íbúðar er þvottahús með glugga. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og eru flísar á gólfi.
Geymsla: Geymsla er á fyrstu hæð hússins. 

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kristnibraut 4

113 Reykjavík
74.900.000 kr.768 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2001TegundFjölbýlishúsStærð97,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF22531793Fasteignamat68.000.000 kr.Brunabótamat55.650.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑