fasteignasölur.is
Framnesvegur 44
1 af 20

Um eignina

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og einstaklega vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi við Framnesveg 44 á frábærum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. 

Íbúðin sem er 76,2 fm. skiptist í stofu/eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og litla geymslu. Frábær staðsetning, örstutt í skóla, leikskóla, matvöruverslanir, veitingastaði og miðbæinn. Grandinn, Háskólinn og Vesturbæjarlaug í göngufæri. Frábær fyrstu kaup og flottur fjárfestingarkostur. *ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING*

Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson lgfs í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is. 

Íbúðin er 76,2 fm samkvæmt skráningu hjá HMS.


Nánari lýsing:
Sérinngangur er inn í íbúðina. 
Efri hæð:
Komið er inn í anddyri sem er jafnframt stofa og eldhús. Flísar við útihurð og parket á alrými. Hiti í gólfum.
I Rúmgott og bjart svefnherberg. Parket og hiti í gólfum.
Baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri snyrtilegri innréttingu og góðri sturtuaðstöðu. Hiti í gólfum.
Neðri hæð:
II Rúmgott svefnherbergi með litlum glugga og fataskáp.
III Rúmgott svefnherbergi með litlum glugga.
Af neðri hæðinni er gengið inn í sameignina og sameiginlegt þvottahús og þaðan út í garð.
Ekki er full lofthæð á neðri hæð
Annað:
Íbúðin hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum tíðina.
Nýtt þak árið 2016
Ný múrklæðning/sléttpússun að framanverðu árið 2020
Ný múrklæðning /sléttpússun í undirgöngum árið 2020 sem og viðgerðir og frágangur að aftanverðu húsi.
Nýlega hellulagt að aftanverðu (hluti af lóð).
Allt húsið málað árið 2021. 
Húseign að utan virðist vera í góðu ástandi
Garður er frágenginn og er leiksvæði Reykjavíkurborgar við bakgarð.
Í eigninni var áður rekin til margra ára verslunin Svalbarði sem margir þekkja og ber skipulag eignar þess merki.
*ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING*

Hér er frábær eign á ferðinni fyrir t.d. fyrstu kaupendur eða fjárfesta  í  vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Bjössa í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
54.900.000 kr.720 þ./m²
+138,7% á 12 árum
5. nóvember 2014Fyrsta sala
23.000.000 kr.302 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Framnesvegur 44

101 Reykjavík
54.900.000 kr.720 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1927TegundFjölbýlishúsStærð76,2 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22143244Fasteignamat59.450.000 kr.Brunabótamat35.250.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑