fasteignasölur.is
Klukkuberg 17
1 af 24

Um eignina

EIGNIN ER SELD MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVÖRUM.

Mjög falleg 4ra herbergja 108,9 fm. útsýnisíbúð á tveimur hæðum með sérinngang við Klukkuberg 17 í Hafnarfirði. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign með stórkostlegu útsýni til norðurs og suðurs. 
 

Lýsing: Neðri hæð – 55,9 fm. Mjög opin og með góðu flæði. Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum, inn af forstofu er gestasalerni. Borðstofa fyrir framan rúmgott eldhús með fallegri hvítri innréttingu, viftu, flísum á milli skápa og keramik helluborði. Stofa með niðurteknu lofti að hluta, mikið útsýni frá stofu. 

Efri hæð - 46,6 fm: Gengið upp stiga með miklu loftrými, nýlegur þakgluggi hleypir mikilli birtu í rýmið og á efri pall. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar af tvö með skápum. Milliloft sem hentar sem svefn-, leik-, eða geymsluloft er í einu af svefnherbergjunum og útgengt er út á svalir úr öðru. Mjög glæsilegt nýlega endurnýjað baðherbergi sem flísalagt er í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt salerni, innrétting við vask og handklæðaofn. Á baðherberginu tengt fyrir þvottavél og þurrkara í góðri innréttingu. 

Á gólfi forstofu og gestasalernis eru náttúruflísar, flísar eru á gólfi baðherbergis og á öðrum gólfum er harðparket. Sér geymsla 6,4 fm á 1. hæð hússins með mikilli lofthæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Við gafla hússins er búið að setja upp sameiginlegar rafhleðslustöðvar og auðvelt að bæta við fleiri stöðvum eftir þörfum.  Íbúðin afhendist með nýjum gluggum og nýrri svalahurð. Einnig er búið að gera við og fara yfir steypu og múr á allri bakhlið og göflum hússins. 

Um er að ræða fallega og bjarta íbúð á eftirsóttum stað í Hafnarfirði, þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu.


Frekari upplýsingar veitir: 
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Höfði Fasteignasala
74.900.000 kr.688 þ./m²
+68,3% á 7 árum
30. október 2019Fyrsta sala
44.500.000 kr.409 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Klukkuberg 17

221 Hafnarfjörður
74.900.000 kr.688 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár1991TegundFjölbýlishúsStærð108,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20770711Fasteignamat78.750.000 kr.Brunabótamat55.150.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑