1 af 25
Um eignina
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Kjartansstaðir II (Kjartansstaðir lóð) í Skagafirði ásamt tilheyrandi eignarlóð.
Bjart og huggulegt tveggja herbergja einbýlishús á einni hæð alls 67,8 fm., byggt úr timbri árið 1946.
Eignarlóð hússins er 1500 fm.
Frábært útsýni er frá eigninni og víðsýnt.
Fasteignin skiptist í eitt herbergi, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, forstofu og þvottahús.
Komið er í flísalagða forstofu þar sem er fatahengi.
Herbergi er parketlagt og með skápum.
Stofa og borðstofa er björt og parketlögð. Gluggar snúa til suðurs, austurs og vesturs. Svalahurð frá borðstofu og út í garð að sunnan.
Eldhús er flísalagt og með viðarinnréttingu.
Inn af eldhúsi er þvottahús, þar sem er vaskaborð og skápar á vegg.
Baðherbergi er með dúk á gólfi en panil á veggjum.
Pallur er sunnan og vestan við hús, heitur pottur er á palli sunnan við húsið.
Leikkofi er í garði, búið að leggja rafmagn í hann.
Norðan við húsið er klæddur geymslugámur, í honum er bæði rafmagn og heitt vatn.
Útihurð og gluggar var endurnýjað árið 2025.
Húsið var mikið endurnýjað á árunum 2000-2010 og aftur árið 2018. Eftir árið 2000 var skipt um alla milliveggi og húsið klætt að utan. Sett var kamína og ný eldhúsinnrétting. Pallur var gerður sunnan við húsið og heitur pottur settur upp og tengdur.
Árið 2018 var svefnherbergi breytt í borðstofu.
Árið 2023 var sett walk in sturta á baðherbergið.
Fasteignin er einkar vel staðsett á Langholtinu í Skagafirði. Um 16 km. eru til Sauðárkróks og um 10 til Varmahlíðar.
Fasteignin deilir afleggjara með Kjartansstaðakoti neðan Sauðárkróksbrautar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Kjartansstaðir II
551 Sauðárkrókur (dreifbýli)
49.900.000 kr.736 þ./m²
Einbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundEinbýlishúsStærð67,8 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21402011Fasteignamat27.000.000 kr.Brunabótamat31.300.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 25 myndir
Upp ↑