fasteignasölur.is
Austurbrú 12
1 af 19

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - þriggja til fjögurra herbergja "penthouse" íbúð á tveimur hæðum merkt 0403 í nýbyggingu með fimm svölum ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 12, Akureyri.

Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.


Smelltu hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið

Íbúðin er samtals 163,1fm., þar af er geymsla 13,1fm.

Íbúð 0403 er á tveim hæðum.

Neðri hæð
Gert er ráð fyrir forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi með útgengi út á um 13,9fm. svalir.
Auðveldlega má koma fyrir auka svefnherbergi við hlið eldhússins með svölum til vesturs.
Út úr stofu er útgengt á tvennar svalir.

Stigi á milli hæða fylgir eigninni

Efri hæð  
Mikil lofthæð einkennir efri hæðina, þar er gert ráð fyrir gangi, baðherbergi og tveimur rúmgóðum svefnherbergjum hvort um sig með svalir.

Rúmgóð geymsla í sameign.
Stæði B35 í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Íbúðin afhendist fullbúin að utan en ófullgerð, nánast tilbúin til tréverks að innan.  Gert er ráð fyrir að kaupandi vilji hanna lokafrágang á íbúðinni þar sem miklir og skemmtilegir möguleikar eru við lokafrágang á þessari einstöku eign.

ATH: Myndirnar að innan eru tölvugerðar af speglaðri íbúð.

Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Áshamar 10-18 inn á Skáld Hótel
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins. 


Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Sölumenn Helgafells fasteignasölu

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Austurbrú 12

600 Akureyri
145.300.000 kr.891 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð163,1 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25313706Fasteignamat74.250.000 kr.Brunabótamat8.250.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑