fasteignasölur.is
Perla Inv. - Fallegt einbýlishús með einka sundlaug
1 af 37

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Fallegt einbýlishús með sér sundlaug

Glæsilegt og nútímalegt einbýlishús á einni hæð í Roldán, sem er hefðbundinn Spænskur bær og tilheyrir Murcia héraði.

Húsið hefur að geyma 3 rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Bjart alrými með fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum og stofu, þaðan er gengið út í fallegan garð með rúmgóðri verönd með útieldhúsi og sér sundlaug. Einnig fylgir eigninni sér bílastæði inn á lóð auk þaksvala.

Húsið er staðsett í bænum Roldán þar sem alla nauðsynlega þjónustu, s.s. heilsugæslu, skóla o.fl. er jafnframt að finna. Og hafirðu áhuga á að heimsækja hinar sögulegu borgir Murcia eða Cartagena, fara í Dos Mares verslunarmiðstöðina, á hinar annáluðu strandir Mar Menor eða á alþjóðlega flugvöllinn í Corvera þá ertu alltaf innan 30 mínútur að keyra þangað að heiman.

Einnig er stutt að fara á Torre golf, sem er glæsilegur 18 holu golfvöllur á sannkölluðum paradísar stað, þar sem náttúran fær að njóta sín.

Costa Cálida er kjörinn staður til að njóta einstakrar paradísar með öllum þeim menningar- og náttúruauð sem Murcia-héraðið hefur upp á að bjóða. Það er líka heimsklassa paradís fyrir íþróttaunnendur: Sjóíþróttir eða óendanlegt úrval af afþreyingu eins og sund, siglingar eða vatnsskíði, sem og landíþróttir, með valkosti sem eru allt frá tennis til gönguferða eða golfs.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7507/fallegt-einbylishus-med-ser-sundlaug/                                              

Ref: NB-84761

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Fallegt einbýlishús með einka sundlaug

1053 Spánn - Costa Blanca
53.900.000 kr.534 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2026TegundFjölbýlishúsStærð101 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 37 myndir

Upp ↑