fasteignasölur.is
Dugguvogur 7
NýttOpið hús 12. sept. kl. 14:00–14:30
1 af 108

Um eignina

Miklaborg / Sæþór Ólafsson lögg. fasteignasali kynna til sölu fallega og vel skipulagða 2-3ja herbergja íbúð með mikilli lofthæð, merktu bílastæði í bílageymslu, 4 fm svölum með svalalokun ásamt 12,8 fm sérafnotaflöt, í nýlegu fjölbýlishúsi við Dugguvogi 7 í Reykjavík.
Eignin er á jarðhæð og er teiknuð og skráð sem tveggja svefnherbergja en milliveggur fyrir barnaherbergi var fjarlægður og nýtist því eignin í dag sem rúmgóð 2ja herbergja íbúð.
Auðvelt er að bæta við millivegg og breyta eigninni í 2ja svefnherbergja íbúð.

Vandað hús byggt af ÞG Verk árið 2021 - Frábær kostur fyrir fyrstu kaup


Allar nánari upplýsingar veitir

Sæþór Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Eru 4,0 fermetrar að stærð með svalalokun og svalagólf klætt með viði.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, bakaraofn og vifta, stillanleg lýsing er undir efriskápum í eldhúsi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og stórum fataskápum.
Milliveggur fyrir barnaherbergi var fjarlægður, því nýtist eignin í dag sem rúmgóð 2ja herbergja íbúð. Auðvelt er að setja upp vegg svo hún nýtist sem 3ja herbergja íbúð.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 6,7 fermetrar að stærð með mikilli lofthæð.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring á bílakjallara. Merkt (D7105)


Allar nánari upplýsingar veitir:
Sæþór Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is


Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
66.200.000 kr.1015 þ./m²
+25,1% á 5 árum
1. desember 2021Fyrsta sala
52.900.000 kr.811 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dugguvogur 7

104 Reykjavík
66.200.000 kr.1.015 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð65,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2511144Fasteignamat62.500.000 kr.Brunabótamat55.870.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 108 myndir

Upp ↑