fasteignasölur.is
Hafnartorg (Geirsgata) 4
1 af 8

Um eignina

Ergon kynnir til LEIGU eignina Geirsgata 4, 101 Reykjavík.

Til leigu glæsilegt nútíma 195fm verslunar- og þjónusturými staðsett á kjarnasvæði í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið Hafnartorgi.
Inngangur beggja megin við húsið. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og sýnileika.
Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgum stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.
Byggingin er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfsemi. 

Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson lfs og löggiltur leigumiðlari,
tölvupóstur: david@ergon.is.
sími: 7666633.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Ergon bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 

Hafnartorg (Geirsgata) 4

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð195 m²
Tilboð
Byggingarár2018FasteignanúmerF2363592Brunabótamat308.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLitlakrika 76, 270 MosfellsbærSími766-6633

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑