fasteignasölur.is
Hverfisgata 15
1 af 18

Um eignina

REMAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu afar sjarmerandi hús við Hverfisgötu 15 á Siglufirði. Húsið er byggt árið 1923 en húsið hefur verið mikið endurnýjað bæði að innan og utan sl. ár. 

Húsið er á þremur hæðum, tvö herbergi í risi, á miðhæð er stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu, í kjallara eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús og skíða/útifata geymsla. Samkvæmt HMS er birt flatarmál hússins 93,9 fm. 

Nánari lýsing:
Miðhæð:
Aðalinngangur er á miðhæðinni.
Stofa/borðstofa:
Parket á gólfi. Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á stóra timburverönd frá stofunni. Undir pallinum, að hluta, er gott geymslurými fyrir útihúsgögn ofl. 
Eldhús: Parket á gólfi. Eldhúsinnrétting nýlega endurnýjuð. Ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi: Parket á gólfi. Handlaug, sturtuklefi og salerni.
Ris:
Tvö svefnherbergi: Parket að hluta. Tvö rými. Gluggar í báðum rýmum.
Kjallari:
Tvö svefnherbergi: Gólf flotuð og máluð. Gluggar í báðum rýmum.
Baðherbergi: Sturta, innrétting með handlaug og salerni.
Skíðageymsla: Auka inngangur beint inn í þetta rými.
Þvottahús: Inn af öðru svefnherberginu

Eignin er einstaklega sjarmerandi og frábærlega vel staðsett , í göngufæri við alla þjónustu, beint fyrir ofan Sigló Hótel, innan við 10 mín akstur er á frábært skíðasvæði, bæði fyrir svigskíði og frábærar gönguskíðabrautir í fallegum dal. Frábær 9 holu golfvöllur er þar á sumrin.

Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
44.900.000 kr.478 þ./m²
+149,4% á 9 árum
6. febrúar 2018Þinglýstur kaupsamningur
18.000.000 kr.192 þ./m²
+260,0% á 5 árum
31. ágúst 2012Fyrsta sala
5.000.000 kr.53 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hverfisgata 15

580 Siglufjörður
44.900.000 kr.478 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1923TegundEinbýlishúsStærð93,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF213060812Fasteignamat24.650.000 kr.Brunabótamat41.500.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑