fasteignasölur.is
Dalssel 1
1 af 31

Um eignina

Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í sölu Dalssel 1, 861 Hvolsvöllur.
Spennandi kostur í ferðaþjónustu.
Um er að ræða ferðaþjónustujörð, sem staðsett er við þjóðveg 1 undir Eyjafjöllum. Jörðin er í heldina 133,5 ha að stærð og þar af ræktað land 70 ha sem leiðgir eru út til kornræktar. Alls eru sex hús á jörðinni, hótel með 8 herbergjum, íbúðarhús, fjós, hlaða, fjárhús og fjárhúshlaða. Frá jörðinni er gríðarlegt útsýni en þaðan má meðal annars sjá Heklu, Tindfjöll, Stóra Dímon, Seljalandsfoss og Eyjafjallajökul. Neysluvatnslögn Vestmannaeyja liggur um jörðina.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Nánari lýsing:

Hótelbygging:
Hótelið, sem tekið var í notkun 2019 er 278 fm. á einni hæð með átta herbergjum, hvert með sér baðherbergi er í hótelinu rúmgóður matsalur.
Herbergjagangur og herbergi eru teppalögð, baðherbergin eru flísalögð í hólf og gólf, vaskur, upphengt salerni og sturta. Útgengt er úr hverju herbergi á lóð.
Þvottahús er í hótelinu með vinylparketi á gólfi og fjórum iðnaðarvélum.
Tveir 400 L hitakútar sjá hótelinu fyrir heitu vatni og gólfhiti er í öllum rýmum.
Bárujárn er á þaki.
Komið er þriggja fasa rafmagn.
 
Íbúðarhús:

Íbúðarhúsið er 232 fm á tveimur hæðum byggt árið 1954. Að innan skiptist efri hæðin í forstofu, þrjú herbergi, hol, baðherbergi, stofu og eldhús. Sama skipulag er á neðri hæðinni en hún er komin að viðhaldi.

Fjós og hlaða: 
Fjósið og hlaðan eru sambyggð og eru í heildina 708,7 fm. að stærð. Húsin eru uppsteypt en fjósið er nýtt í dag sem vélaskemma. Í fjósinu er nýlega búið að setja upp nýjar sperrur og yleiningar á þak ásamt nýjum gluggum að hluta. Húsnæðið bíður uppá möguleika til frekari stækkunar á ferðaþjónustu. 

Fjárhús og fjárhúshlaða:
Fjárhúsið og fjárhúshlaðan eru sambyggð og eru þau í heildina 410,6 fm að stærð. Húsin eru uppsteypt með bárujárni á þaki. 
 
Óskipt sameign:
Jörðin á hlut í óskiptri sameign á bökkum markarfljóts. Þessi sameign nokkra jarða er í heildina um 900 he. Veiði er í fljótinu og aurar með malarnámi.

Virkilega áhugaverð eign sem vert er að koma að skoða.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dalssel 1

861 Hvolsvöllur (dreifbýli)
390.000.000 kr.0
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð2089750,3 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21916501Fasteignamat90.981.000 kr.Brunabótamat265.260.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑