fasteignasölur.is
Hverfisgata 39
1 af 32

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Lýsing:
Sérstaklega björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í steyptu snyrtilegu fjölbýli við Hverfisgötu 39 til sölu. Íbúðin er á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur.  Sameiginlegar svalir eru út af hverri hæð hússins og einnig eru sameiginlegar þaksvalir, með virkilega fallegu útsýni út á sjóinn og yfir borgina.

Eignin er skráð skv. fasteignaskrá alls 96,5 fm. og þar af er geymsla 7,9 fm.  

Nánari lýsing:
Forstofa/gangur, parket á gólfi, fatahengi og rúmgóðir innbyggðir skápar.
Eldhús er með snyrtilegri hvítri innréttingu frá HTH, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn, innbyggður ísskápur,  parket á gólfi.  Glæsilegt útsýni til sjávar og yfir Esjuna frá norðurhlið (Veghúsastígsmegin).  Hægt er að færa eldhús í stofu og bæta þannig við auka herbergi, búið er að leggja vatns og frárennslislagnir fyrir það. 
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Rennihurð er á milli stofu/borðstofu og herbergis. 
sem er rúmgott og bjart með parketi á gólfi. 
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. Fallegt útsýni er úr herberginu. 
Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagðir veggir og upprunalegu terrazzo gólfi. 

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sína vél.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Stigahús er teppalagt, svalir á hverri hæð og á efstu hæð eru sameiginlegar stórar suðurþaksvalir.

Endurbætur:
Verið er að endurnýja neysluvatnslagnir.
Gluggar innan íbúðar málaðir 2025
 
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, verslun, veitingastaði og mannlíf.  Göngufæri í leikskóla (Lindaborg).

Góð aðkoma er að húsinu. Inngangur er í húsið bæði frá Hverfisgötu og Veghúsastíg.

Allar nánari upplýsingar veitir Leifur Aðalsteinsson  löggiltur fasteignasali í síma 662-3999 eða á  leifur@fastgardur.is 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
74.900.000 kr.776 þ./m²
+26,9% á 5 árum
4. mars 2022Fyrsta sala
59.000.000 kr.611 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hverfisgata 39

101 Reykjavík
74.900.000 kr.776 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1936TegundFjölbýlishúsStærð96,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20032926Fasteignamat74.550.000 kr.Brunabótamat40.800.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑