Um eignina
Staðsetning inná ja.is er hér
Nánari lýsing:
Anddyri með fatahengi.
Baðherbergi með vaski. ATH ekki með sturtu.
Tvö svefnherbergi. Harðparket á gólfum.
Stofa, og eldhús eru samliggjandi. Harðparket er á gólfum. Hátt til lofts.
Eldhús með rafmagnseldavél á borði. Harðparket er á gólfum.
Pallurinn er allan hringinn við húsið og er rúmgóður. Á pallinum er kominn grind af gestahúsi.
Húsið er nýmálað að utan.
Góð bílastæði við húsið og búið er að útbúa veg frá lóðarmörkum að húsinu.
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni og útivist, sundlaug og 18 holu golfvöll í Öndverðarnesi. Einnig er kominn golfhermir í golfskála. sjá www.gogolf.is
Stutt er í alla þjónustu, Selfoss er í 15 mín fjarlægð.
Lóðin er kjarrivaxin með fallegu útsýni, rafmagni og köldu vatni. Þetta svæði er lokað með rafmagshliði (símahlið). Leigulóð er ótímabundin. Leigan er 168 þús á ári. Lóðin er 5000 fm leigulóð frá Önverðarness ehf sem er aðallega í umsjón Múrarameistarafélagsins.
Sýni alla daga, nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Vaðhólsbraut 14
Staðsetning
Allar 21 myndir
Upp ↑



















