fasteignasölur.is
Ljósheimar 4
1 af 25

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir: Bjarta og afar vel skipulagða 108,9 fm fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Ljósheima 4, 104 Reykjavík.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar eins og fyrr segir 108,9fm, þar af er íbúðin 102,6 fm og sérgeymsla í kjallara 6,3 fm.


Um er að ræða rúmgóða og vel hannaða fjölskylduíbúð með þremur góðum svefnherbergjum, björtu alrými, tveimur svölum og fallegu útsýni yfir græn svæði. Íbúðin hefur verið vel umgengin og býður upp á gott geymslupláss og góða nýtingu fermetra.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er klætt viðhaldslítilli utanhúsklæðningu. Staðsetningin er einstaklega góð þar sem örstutt er í Laugardalinn, skóla á öllum stigum, leikskóla, verslanir og aðra helstu þjónustu. 

Nánari lýsing: 
Forstofa / gangur
Rúmgóð forstofa sem tengir allar vistarverur eignarinnar. Góðir fataskápar eru á herbergisgangi.
Stofa og borðstofa
Mjög bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Þaðan er útgengt á rúmgóðar vestursvalir með fallegu útsýni yfir gróið umhverfi.
Eldhús
Falleg viðarinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur við glugga gerir eldhúsið notalegt og bjart.
Hjónaherbergi
Rúmgott herbergi með heilum skápavegg og útgengi út á austursvalir.
Svefnherbergi I og II
Tvö góð barnaherbergi með fataskápum og stórum gluggum sem gefa góða birtu.
Baðherbergi
Flísalagt með rúmgóðri sturtu, fallegri innréttingu, speglaskáp, tengi fyrir þvottavél og opnanlegum glugga sem veitir góða loftræstingu.
Geymsla
Sérgeymsla í kjallara, skráð 6,3 fm.
Sameign
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara, þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu. Sameiginleg lóð er snyrtileg og hitalögn er í stétt við húsið.



Frábær staðsetning við Laugardalinn, skóla og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is


 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
77.900.000 kr.715 þ./m²
+127,8% á 10 árum
6. september 2016Þinglýstur kaupsamningur
34.200.000 kr.314 þ./m²
+66,8% á 6 árum
14. desember 2010Fyrsta sala
20.500.000 kr.188 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ljósheimar 4

104 Reykjavík
77.900.000 kr.715 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn
Byggingarár1958TegundFjölbýlishúsStærð108,9 m²Herbergi4FasteignanúmerF20220601Fasteignamat77.950.000 kr.Brunabótamat61.100.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑