fasteignasölur.is
Perla Inv. - Ný einbýlishús í Polop með sjávarútsýni
1 af 44

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Ný einbýlishús í Polop með sjávarútsýni

 Þessi glæsilegu nýbyggðu einbýlishús eru staðsett í Polop á stórum lóðum, frá um 351 m², og bjóða upp á fallegt sjávarútsýni. Húsin eru hönnuð með áherslu á þægindi og útivist og eru með einkasundlaug, rúmgóðri verönd og yfirbyggðu útisvæði ásamt einkabílastæði. Í boði eru mismunandi útfærslur, bæði á einni eða tveimur hæðum, og einnig er hægt fá aukalega þaksvali með enþá betra sjávarútsýni.

Húsin eru með vönduðum frágangi og meðal annars eru rafdrifnar álgardínur í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum, gólfhiti á baðherbergjum og undirbúningur fyrir innbyggða loftkælingu. Þrjár sólarsellur eru á hverri eign og húsin eru með A-orkuflokkun.

Polop er fallegur og rólegur spænskur bær í Marina Baja, umkringdur náttúru og fallegu landslagi. Stutt er í strendur og helstu bæi á Costa Blanca. Benidorm og Altea eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð, La Nucía í um 5 mínútur og Alicante-borg í um 30 mínútur. Alicante-flugvöllur er í um 40 mínútna akstursfjarlægð og næsta strönd í um 8 km fjarlægð. Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja rólegt umhverfi, fallegt sjávarútsýni og jafnframt stutt í strönd, þjónustu og afþreyingu.

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á: https://perlainvest.com/eign/6669/ny-einbylishus-i-polop-med-sjavarutsyni/

REF:NB-73730

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com

Perla Inv. - Ný einbýlishús í Polop með sjávarútsýni

1053 Spánn - Costa Blanca
94.000.000 kr.729 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 3 bað
Byggingarár2027TegundFjölbýlishúsStærð129 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 44 myndir

Upp ↑