fasteignasölur.is
Skúlagata 40
1 af 40

Um eignina

Rúmgóð og björt 2ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð (íbúð 901) í góðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri auk sérmerkts bílastæðis í upphituðum bílakjallara við Skúlagötu 40.  Í sameign er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum. Stór sameiginlegur samkomusalur er í húsinu sem íbúar geta fengið til afnota gegn vægu gjaldi. Næg bílastæði eru á lóðinni og búið er að setja upp tvö sér bílastæði með rafmagnshleðslustöð á bílaplani. Í bílakjallara er mjög góð sameiginleg bílaþvottaaðstaða fyrir íbúa. Félagsmiðstöðin Vitatorg er í fimm mínútna göngufjarlæð að Lindargötu 59, en þar er hægt að vera í áskrift með heitan mat í hádeginu og njóta starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar 59 https://reykjavik.is/lindargata-59 . Kaupandi þarf að vera í Félagi eldriborgara.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 84,9fm. og þar af er bílastæði í bílakjallara 15fm. 

Nánari lýsing

Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi, góð tenging við eldhús. Fallegt útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á útsýnissvalir úr stofunni. 
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, efri og neðri skápar með flísum á milli, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.  
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtileg innrétting, vaskur, salerni og dúkur á gólfi.  
Þvottahús/geymsla innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél, upphengdar hillur og dúkur á gólfi. 
Bílastæði er sérmerkt í upphituðum bílakjallara merkt nr. 31 fylgir eigninni.

Geymsla í sameign: Hægt er að leigja auka geymslu gegn hóflegu gjaldi.

Sameignin hefur verið mikið endurnýjuð og vel við haldið. Nýlega var skipt um gler í sameigninni og settir upp nýir dyrasímar.
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Klapparstígs megin og einnig neðan húss Skúlagötumegin.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skúlagata 40

101 Reykjavík
69.900.000 kr.823 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð84,9 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF20035131Fasteignamat73.650.000 kr.Brunabótamat48.310.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑