fasteignasölur.is
Lautarvegur 6
1 af 42

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is kynna: Lautarvegur 6, nýleg  4ra til 5 herbergja neðri sérhæð og bílskúr í vönduðu 3-býli á þessum eftirsótta stað stutt frá Borgarspítalanum. Eignin er samtals 176,3 fm þar af bílskúr 26 fm. Frábær staðsetning og nálægt fallegu útivistarsvæði. Stutt í Nauthólsvíkina og Fossvoginn.  Úti Inni Arkitektar hönnuðu húsið. 
Myndband úr eigninni. 

Anddyri, sérinngangur og forstofa með flísum og hiti í gólfi. 
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, útgengt þaðan út á yfirbyggða verönd (ca 20 fm sem er ekki í fermetratölu eignar) að hluta til (gler lokanir) og þaðan er gengið út á afgirta timburverönd sem snýr í suður. Frá stofu er líka lítill sjónvarpskrókur (hluti af borðstofu á teikningu), einnig er lítið vinnuherbergi við hliðina. 
Eldhús og stofa í opnu rými. Vandaðar innréttingar, Miele tæki, stór eyja, span helluborð. Silestone-steinplata á eldhúsborðum og eyju.
Baðherbergi:  rúmgott með rúmgóðri sturtuaðstöðu og vandaðari innréttingu, Gluggi á baði, flísar í hólf og gólf. Gólfhiti.
Aðalsvefnherbergi I: Svefnálma: Rúmgóð hjónasvíta/hjónaherbergi með útgangi út á hellulagða verönd, fataherbergi og baðherbergi inn af hjónasvítu, fín sturtuaðstaða og vönduð tæki, flísar á gólfi og veggjum. Gólfhiti. Opnanlegur gluggi. 
Svefnherbergi II rúmgott rými með fataskápum.
Svefnherbergi III rúmgott rými með fataskápum.
Rúmgóð 10,6 fm sérgeymsla í sameign ásamt góðri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstöðu
Hiti í bílaplani og gangstígum. 
Bílskúr er fullbúinn með hita og sjálfvirkum opnara. Rafhleðslustöð í bílskúr. Fjær bílskúr.

Staðetning er vinsæl, stutt er í gróið svæði í Fossvoginum, ásamt frábærum göngu og hjólaleiðum. 

Nýlegar endurbætur:
2026: Forhitari settur fyrir neysluvatn
2025: Múrverk yfirfarið og málað að utan. 
2024: Húsið var sílanhúðað að utan

Allar nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
159.900.000 kr.907 þ./m²
+20,7% á 4 árum
13. apríl 2022Þinglýstur kaupsamningur
132.500.000 kr.752 þ./m²
+47,4% á 2 árum
22. júní 2020Fyrsta sala
89.900.000 kr.510 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lautarvegur 6

103 Reykjavík
159.900.000 kr.907 þ./m²
Hæð3 svefn · 2 bað
Byggingarár2019TegundHæðStærð176,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23280509Fasteignamat139.700.000 kr.Brunabótamat114.650.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑