1 af 46
Um eignina
RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu hesthús að Landsenda 15, í Spretti - 203 Kópavogi. Hér er um að ræða einstaklega vel skipulagt og snyrtilegt 6–8 hesta hús.
Nánari lýsing:
Hestarými:
Innréttað fyrir 7 hesta í núverandi uppsetningu (3 eins hesta stíur 4,6 fm² og 2 tveggja hesta stíur 7 fm²). Stíurnar eru djúpar safnstíur með grindum, en auðvelt er að breyta þeim í klassískar safnstíur ef framtíðareigandi kýs. Hitalögn er í fóðurgangi. Húsið er skráð fyrir 6 hesta, en er ekki langt frá því að uppfylla skilyrði fyrir 8 hesta samkvæmt reglugerð.
Vinnuaðstaða:
Gott aðgengi er fyrir vélmokstur þar sem opna má inn í stíjurnar frá framhlið hússins. Rafmagnsspil er uppsett til að draga inn heyrúllur sem geymdar eru fyrir aftan hús, sem léttir alla vinnu til muna.
Kaffistofa og snyrting:
Rúmgóð og björt kaffistofa með fallegri innréttingu, uppþvottavél og ísskáp. Innan af kaffistofu er snyrtilegt salerni og hol með þvottavél.
Svefnloft og geymsla:
Fyrir ofan kaffistofuna er u.þ.b. 8 m² svefnloft sem eykur nýtingu hússins. Hnakkageymsla er í læstu rými, og yfir henni er rúmgott geymsluloft. Hlaðan er stór með góðu vinnuplássi.
Loftræsting:
Húsið er búið öflugum útsogsblásara í hestarými. Að auki er sérstakt loftræstikerfi fyrir hlöðu, hnakkageymslu og kaffistofu sem tryggir ferskt, hitað loft og kemur í veg fyrir raka og ryk söfnun.
Lóð og umhverfi:
Það sem gerir Landsenda 15 einstakt er útisvæðið. Húsinu fylgir stórt sérgerði. Við gerðið er breið, upphituð stétt sem tryggir gott aðgengi og öryggi yfir vetrarmánuðina.
Staðsetning:
Húsið stendur á einum besta stað í Spretti, á leiðinni upp í Guðmundarlund. Staðsetningin er einstaklega skjólsæl; húsið hlífir gerðinu í ríkjandi vindáttum sem lágmarkar snjósöfnun. Stutt er í reiðhöll félagsins, hringvöll og frábærar reiðleiðir allt um kring.
Landsendi 15 er hesthús í sérflokki þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Frábær kostur fyrir kröfuhart áhugafólk um hestamennsku sem leitar að gæðaeign á frábærum stað.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Landsendi 15
203 Kópavogur
28.500.000 kr.381 þ./m²
Hesthús
Byggingarár2012TegundHesthúsStærð74,8 m²FasteignanúmerF23246636Fasteignamat21.260.000 kr.Brunabótamat29.420.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 46 myndir
Upp ↑