fasteignasölur.is
Dunhagi 18
1 af 9

Um eignina

Valborg ehf kynnir eignina Dunhagi 18, 107 Reykjavík, nánar tiltekið atvinnuhúsnæði (endabil) á fyrstu hæð, rúmlega 95,2 fm til sölu/leigu í nýlega endurhönnuðu hús í Vesturbænum. Bilið er merkt 102 og er með sturtu og salernis aðstöðu. Bilið er að öðru leyti tilbúið til innréttingar.
Bilið er lengst til hægri þegar horft er á húsið að framanverðu og eina bilið sem er óselt á jarðhæðinni. Geymsla er í kjallara sem er 13,6 fm.
Vsk kvöð er á eigninni sem kaupandi yfirtekur við samning. Lokaúttekt á eigninni hefur farið fram.


Eignin Dunhagi 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-8185, birt stærð 95.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Dunhagi 18

107 Reykjavík
65.000.000 kr.683 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1959TegundAtvinnuhúsnæðiStærð95,2 m²Herbergi1FasteignanúmerF20281853Fasteignamat47.350.000 kr.Brunabótamat52.650.000 kr.
Skráð hjá
Valborg - fast. og ráðgj. ehf.
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑