Um eignina
- Nýlegt hesthús á Gaddstaðaflötum, nýja hesthúshverfinu á Hellu
- Hesthúsið tekur 15 hesta í rúmgóðum einshesta stíum.
- Góð viðrunargerði eru fyrir utan húsið.
- Falleg kaffistofa með herbergi innaf.
- Stíurnar eru úr ryðfríu stáli með plasti í milligerðum.
- skv. skráningu HMS er eignin 215 fm að stærð.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Hesthús góðum stað í nýja hesthúsahverfinu. Húsið er byggt árið 2015 úr límtré og klætt með yleiningum. Hesthúsið er einkar rúmgott með góðum fóðurgangi og við enda hans er stór bílskúrshurð. Möguleiki á að moka húsið með vél. Góð aðstaða er fyrir hnakka og þá hluti sem þarf til hestahalds. Salerni er í eigninni.
Kaffistofan er rúmgóð með góðri eldhús innréttingu.
Gaddstaðaflatir er eitt flottasta keppnissvæði á Íslandi og þar er stór reiðhöll sem möguleiki er að fá aðgang.
Á heildina litið er þetta virkilega fallegt og gott hesthús á frábærum stað.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Orravellir 4-6
Staðsetning
Allar 24 myndir
Upp ↑






















