Um eignina
- Virkilega fallegt einbýli á flottum stað á Hellu.
- Búið er að gera aukaíbúð á neðri hæð með sér inngangi.
- Skv. skráningu HMS er eignin 280,9 fm
- Einfalt væri að gera aðra aukaíbúð á neðri hæð.
- Möguleiki á að vera með eignina í skammtímaleigu.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Efri hæðin er smekklega innréttuð með þremur svefnherbergjum og fallegu alrými með stofu, borstofu og eldhúsi. Eldhúsið er rúmgott með fallegri og rúmgóðri innréttingu. Útgengi er úr eldhúsi/borðstofu út á stórar svalir með úti eldhúsi. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi með sturtu og salernisaðstöðu. Annað baðherbergi er á þessari hæð með upphengdu salerni, innréttingu og baðkari.
Bæði baðherbergin eru flísalögð í hólf og gólf
Hægt er komast upp á efri hæðinu um stiga sem er utan á húsinu bakatil.
Neðri hæðin er með rúmgóðu anddyri og þvottahúsi, þaðan er hægt að fara upp á efri hæðin um rúmgóðan og fallegan stiga.
Á neðri hæðinni er búið að útbúa fallega tveggja herbergja íbúð með sér inngangi.
Hiti er í öllum gólfum
Flísar eru á öllum gólfum.
Gríðarlega stórt steypt bílaplan er fyrir utan húsið og er hiti í því öllu.
Kofi með rennandi vatni og rafmagni stendur fyrir utan eigninga.
Á heldina litið er þetta virkilega fallegt og mikið endurnýjað einbýli.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Þrúðvangur 8
Staðsetning
Allar 17 myndir
Upp ↑















