fasteignasölur.is
Rauðalækur
1 af 21

Um eignina

Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Rauðalækur, 851 Hella.
  • Verulega vel staðsett atvinnuhúsnæði við þjóðveg númer eitt.
  • Eign sem býður upp á mikla möguleika
  • Í dag er eignin innréttuð og notuð sem dýraspítali og er vel útbúin sem slík.
  • Möguleiki á að vera með verslun eða aðra sambærilega þjónustu.
  • Mikil ferðamanna umferð fer framhjá á degi hverjum op því möguleiki á að breyta eigninni í ferðamannaþjónustu.
  • Eignin hefur fengið gríðarlega mikla enduruppbyggingu og mikið verið endurnýjað.
  • Skv. skráningu HMS er eignin 365,3 fm að stærð.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri sem leiðir inn í alrými með verslun og móttöku. Inn af verslun er aðstaða fyrir starfsfólk, eldhús, skrifstofa og salerni.
Gengið er inn á sjálfan dýraspítalinn úr alrýminu og er þar töluvert af stúkuðum herbergjum.
Baka til er eining þar sem hátt er til lofts og stór bílskúrshurð. Þar er búið að koma fyrir fjórum stíum fyrir hesta úr ryðfríu stáli með plasti í milligerðum og framhliðum.

Eign á frábærum stað sem býður upp á endalausa nýtingarmöguleika.
Eign sem vert er að koma að skoða.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 

***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Rauðalækur

851 Hella (dreifbýli)
135.000.000 kr.370 þ./m²
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1971TegundAtvinnuhúsnæðiStærð365,3 m²Herbergi3FasteignanúmerF22510011Fasteignamat13.150.000 kr.Brunabótamat128.900.000 kr.
Skráð hjá
Eignaland
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑