fasteignasölur.is
Perla Inv. - Fallegt einbýlishús á einni hæð
1 af 44

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir:

Fallegt einbýlishús á einni hæð

Þetta fallega einbýlishús sem snýr í suður er á einni hæð með 3 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum með hita í gólfi, fullinnréttuðu eldhúsi með gæða heimilistækjum og með eigninni fylgir einnig stór og flott verönd með einkasundlaug, þaksvalir með æðislegu útsýni og sér bílastæði inni á lóð.

Kaupendum gefst kostur að bæta við kjallara gegn vægu gjaldi.

Eignin verður afhent í Maí 2026

Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s GoKart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu. 

Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar https://perlainvest.com/eign/6682/fallegt-einbylishus-a-einni-haed/                              

Ref: NB-92075

Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu.  Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Fallegt einbýlishús á einni hæð

1053 Spánn - Costa Blanca
73.900.000 kr.691 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2026TegundEinbýlishúsStærð107 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 44 myndir

Upp ↑