fasteignasölur.is
Snorrabraut 62
1 af 21

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Nýlega 2ja herbergja endaíbúð 209, á annarri að Snorrabraut 62, Reykjavík. 
Birt stærð íbúðar er 53,8 fm (þar af geymsla 8,4 fm). Leyfi fyrir gæludýrahaldi er í húsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð, með aðgengi frá lóð. 

Lýsing eignar:
Gengið er inn í forstofu sem tengist alrými íbúðarinnar. Stofa og eldhús mynda bjart og opið rými með stórum gluggum á tveimur hliðum sem hleypa mikilli dagsbirtu inn. Úr stofu er gengið út á svalir með góðu útisvæði. Eldhús er í nútímalegum stíl með góðu skápaplássi og tengist stofu á þægilegan hátt.  Baðherbergi er rúmgott, flísalagt veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi, snyrtileg innrétting og tengi fyrir bæði þurrkara og þvottavél. Svefnherbergið er rúmgott og með fataskáp. 

Staðsetning:
Snorrabraut er miðsvæðis í Reykjavík með stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla og almenningssamgöngur. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja búa miðsvæðis með greiðu aðgengi að miðborg og stofnæðum.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Snorrabraut 62

101 Reykjavík
58.500.000 kr.1.083 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð54 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25224611Fasteignamat58.450.000 kr.Brunabótamat35.550.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑