fasteignasölur.is
Jöfursbás 5
1 af 24

Um eignina

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5A, Reykjavík
-- íbúð 0403.  3ja-4ra herbergja endaíbúð íbúð 115,2fm. á fjórðu hæð, þar af geymsla 8,5fm. (merkt 0013).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B038 í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum og möguleiki á þriðja herberginu.  Sér-þvottahús innan íbúðar.  Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar . 72fm. flísalagðar þaksvalir með óbeinni lýsingu og gler handriði út frá stofu. Sjávarútsýni.

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa rúmgóð með stórum fataskáp 
Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og innbyggð ísskápur, frystir og uppþvottavél.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.
Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar.  Mögulegt að gera herbergi innaf stofu.
Baðherbergið  flísalögð með  60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísalagt gólf.
Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp 
Þaksvalir 72 fm. flísalagðar með glerhandrið og óbeinni lýsingu.  Engin útigeymsla.
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar


Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Jöfursbás 5

112 Reykjavík
114.900.000 kr.997 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð115,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253034351Fasteignamat95.400.000 kr.Brunabótamat79.090.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑