fasteignasölur.is
Hallgerðartún 55
1 af 41

Um eignina

Fasteignaland fasteignasala og Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, hordur@fasteignaland kynna til sölu:
Hallgerðartún 55 sem er glæsilegt og vel skipulagt fullbúið miðjuraðhús á einni hæð á fallegum stað á Hvolsvelli.

Eignin er 132,8 m2, þar af er bílskúr 29,8 m2.
Einstaklega vönduð og falleg eign, mikil lofthæð, innfelld lýsing, hiti í gólfum, flísalagður bílskúr.  Fallegt umhverfi og glæsilegt útsýni. 

Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu.  Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.
Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin. Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).  
Nánari lýsing endaraðhúss: 
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu.  Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.
Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.
Hjónaherbergi (12,4 m2) er með fataskápum, gott skápapláss.
Tvö svefnherbergi (9 m2) með fataskápum.
Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, sér inngöngudyr í bílskúr.
Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.
Verönd Útgengt úr stofu á góða timburverönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.
Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.
Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum.  Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7.  Fullfrágengin skv. skilalýsingu.
Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati.  Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. Fasteignaland fasteignasala ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hallgerðartún 55

860 Hvolsvöllur
82.100.000 kr.617 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2026TegundRað-/parhúsStærð133 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25374482Fasteignamat55.900.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑