fasteignasölur.is
Frostagata 1B eignarhluti 101
1 af 9

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466-1600

Frostagata 1b eignarhluti 101 - Vel staðsett atvinnuhúsnæði að Frostagötu 1b á Akureyri - Stærð 134,5 m²


Eignin er að stærstum hluta eitt rými, en innst í öðru horninu eru léttir veggir sem skerma af lager og snyrtingu. Auk þess er gott milliloft, skráð 7,5 m² en þar eru nýtanlegir fermetrar fleiri. 

Aðalrými/Salur er með steinslípuðu gólfi, vegghillum, vinnuborðum og tveimur innkeyrsluhurðum á norðausturhlið. Vængjahurð er um 3,10 m á breidd og 3,20 m á hæð. Hin hurðin er nýlegri, um 3,8 m á breidd og 2,7 m á hæð.
Snyrting er með salerni og skolvaski.
Stálstigi er upp á milliloftið, sem í dag nýtist sem geymsla og kaffistofa. Milliloftið er skráð 7,5 m² en nýtanlegir fermetrar eru fleiri. Geymsluhilla er við hlið millilofts, um 11,5 m² að stærð.

Annað
- Rafmagnstafla var endurnýjuð á árunum 2023-2024 og hluti raflagna og tengla. 
- Heitavatnsnotkun er sérmæld fyrir hvern eignarhluta og sama gildir um rafmagn.
- Gott útisvæði og góð aðkoma - malbikað plan framan við hús og við enda.
- Sameiginleg loftpressa er fyrir húsið.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Frostagata 1B eignarhluti 101

603 Akureyri (utan Glerár)
48.500.000 kr.361 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár1979TegundAtvinnuhúsnæðiStærð134,5 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21464565Fasteignamat34.600.000 kr.Brunabótamat46.150.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑