fasteignasölur.is
LANGAHRAUN 11
1 af 24

Um eignina

Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Langahraun 11, íbúð 202 í Hveragerði.
Nýlega, fjögurra herbergja íbúð á annari hæð með svölum er snúa í suður.
Eignin er samtals 98,2 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin sjálf er 91,5 m² og sér geymsla sem er 6,7m².
Íbúðin skiptist í eldhús, borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og geymslu. 
Sérinngangur er í íbúðina. 
Íbúðin er nýju, skemmtilegu hverfi í Kambalandi, efst í bæjarfélaginu.

Sjá staðsetningur hér:

Upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861 6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Nánari lýsing:
Forstofa komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er tvöfaldur fataskápur.
Stofa eldhús og stofa eru saman í opnu og björtu rými. Frá stofu er útgengt á timburverönd er snýr í suður.
Eldhús er opið inní stofu. Þar er innrétting með efri og neðri skápum, bakarofn, keramik helluborð, uppþvottavél og ísskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf, upphengt wc, handklæðaofn og innrétting með handlaug og skáp.
Á baðherbergi er innrétting með skápum og skúffum en einnig pláss fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð.
Svefnherbergin eru þrjú:
Hjónaherbergi er með suðurglugga er snýr út í garð. Snyrtilegt fataherbergi er inn af hjónaherbergi.
Barnaherbergin eru tvö. Parket á gólfi.
Geymsla er á jarðhæð, 6,7m².
Gólfefni íbúðar eru flísar og parket.
Snyrtilegur frágangur er við húsið en bílastæðin eru 11 talsins, hellulagðar gönguleiðir og lóð þökulögð.

Eignin er byggð árið 2021.
Byggingarefni: steypa.

Upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861 6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Valborg - fast. og ráðgj. ehf.
64.900.000 kr.661 þ./m²
+47,5% á 5 árum
14. janúar 2022Fyrsta sala
44.000.000 kr.448 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

LANGAHRAUN 11

810 Hveragerði
64.900.000 kr.661 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð98,2 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25159747Fasteignamat63.650.000 kr.Brunabótamat59.500.000 kr.
Skráð hjá
Valborg - fast. og ráðgj. ehf.
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑