fasteignasölur.is
Vogatunga 42
1 af 36

Um eignina

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali og Alexandra Eik Októsdóttir sölumaður kynna í einkasölu fallegt endaraðhús við Vogatungu 42 í Mosfellsbæ. 
Um er að ræða endaraðhús á góðum stað í Leirvogstungu með útsýni til sjávar. Eignin er skráð 129,8 fm og skiptist í 102,5 fm íbúð og 27,3 fm bílskúr. Auk þess er um 12 fm óskráð rými/herbergi fyrir ofan bílskúr. Um 140 fm skjólsæll og sólríkur pallur með heitum potti í garðinum.


Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, hjónaherbergi með fataherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsluloft. 
 
Gengið er inn í anddyri með rúmgóðum fataskáp.  
Alrými er bjart og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Í eldhúsi er mjög rúmgóð hvít innrétting frá Nobila. Öll eldhústæki eru frá Siemens, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, bakaraofnar eru tveir. 
Svefnherbergi innan íbúðar eru þrjú, inn af hjónaherbergi er fataherbergi, þaðan er aðgengi upp á geymsluloft. Í báðum barnaherbergjum eru fataskápar.  
Baðherbergi er flísalagt að hluta. Þar eru bæði bað og sturta, góð innrétting við vask, speglaskápar, upphengt salerni og þvottaaðstaða með mjög góðu skápaplássi.

Á öllum gólfum er parket nema á baðherbergi eru flísar.  Hátt er til lofts í húsinu, innfelld ljós og gólfhiti.

Bílskúr er 27,3 fm að stærð auk óskráðs rýmis, um 12 fm, á efri hæð sem nú er notað sem svefnherbergi. Á bílskúrsgólfi er epoxy. 
Í garðinum er um 140 fm sólrík og skjólsæl timburverönd, með skjólveggjum. Á veröndinni er heitur pottur og útigeymsla. Bílastæði er hellulagt og með hitalögnum. 

Skemmtileg eign innarlega í rólegum botnlanga í fjölskylduvænu hverfi með frábæru útsýni til sjávar og sveita!
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is eða Alexandra Eik Októsdóttir sölumaður í síma 897-8277 eða á alexandra@haborg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Háborg fasteignasala
142.900.000 kr.1101 þ./m²
+38,7% á 3 árum
6. júní 2023Þinglýstur kaupsamningur
103.000.000 kr.794 þ./m²
+140,1% á 6 árum
5. september 2017Fyrsta sala
42.900.000 kr.331 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vogatunga 42

270 Mosfellsbær
142.900.000 kr.1.101 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2018TegundRað-/parhúsStærð129,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23314877Fasteignamat102.350.000 kr.Brunabótamat76.350.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑