1 af 29
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Glæsilega 3ra herbergja lúxusíbúð á annarri hæð í sérlega vönduðu húsi í Vogabyggð Reykjavíkur. Íbúðin er 104.8 fm og er öll hin vandaðasta með sérsmíðuðum ítölskum innréttingum frá Gili Creation. Kvartssteinn er á borðum, gólfsíðir gluggar, gólfhiti, vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum. Íbúðin er í sérflokki og var hvergi til sparað við hönnun og smíði hennar. Stæði fylgir eigninni í bílageymslu.Nánari upplýsingar veitir: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
Íbúð 208 er skráð 104,8fm og skiptist í anddyri með fataskápum, rúmgott alrými með opnu eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvö góð svefnherbergi. Íbúðinni fylgir 5,5 fm geymsla og stæði í bílakjallara.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með góðu skápaplássi.
Eldhús: Er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá Ormsson, þ.e. span helluborð, blástursofn, innbyggð uppþvottvél, innbyggður ísskápur og gufugleypir.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar og bjartar og opnar við eldhús. Gólfsíðir gluggar á tvo vegu og útgengi á 5.2 fm svalir sem snúa til vesturs.
Baðherbergi: Mjög glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með stórum, ítölskum terrazzo flísum. Innréttingin er sérsmíðuð úr reyktri eik með kvartsstein á borðplötu og undirlímdum vaski. Sturtan er rúmgóð (walk-in) með blöndunartækjum frá Gröhe og reyklituðu sturtugleri sem nær alla leið upp í loft.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott, með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Þvottahús: Er staðsett innan íbúðar með ítölskum flísum á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik.
Geymsla: 5,5 fm geymsla fylgir íbúðinni. Geymsla er staðsett við stæði í bílageymslunni og er því stutt að fara.
Bílastæði: Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu (B14).
Sameign og garður: Sameignin er mjög snyrtileg og fallegur, sameiginlegur inngarður er milli húsanna.
Hér er frábært tækifæri til að eignast glæsilega íbúð í ört vaxandi hverfi, miðsvæðis í Reykjavík. Ítölsk hönnun og glæsilegt yfirbragð einkennir íbúðina en allar innréttingar voru sérsmíðaðar af Gili Creation sem framleiddi m.a. innréttingar á 5 stjörnu hótelinu The Reykjavik EDITION. Þá var öll innanhússhönnun í höndum Ragnars Sigurðssonar, innanhússarkitekts. Fjölbreytt þjónusta er í göngufæri, stutt í stofnbrautir og svo er mikið af náttúruperlum í nágrenninu.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
92.900.000 kr.886 þ./m²
+12,6% á 3 árum
22. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
82.500.000 kr.787 þ./m²
+7,1% á 1 ári
27. júní 2022Fyrsta sala
77.000.000 kr.735 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dugguvogur 15
104 Reykjavík
92.900.000 kr.886 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð104,8 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF251210312Fasteignamat85.000.000 kr.Brunabótamat67.300.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 29 myndir
Upp ↑



























