1 af 24
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Smekkleg og björt tveggja herbergja íbúð á 2. hæð á frábærum stað við Hallgerðargötu í Reykjavík. Íbúðin státar af vönduðum innréttingum sem frágengnar eru upp í loft, kvartssteini á borðum í eldhúsi og á baðherbergi, gólfsíðum gluggum, gólfhita og loftskiptikerfi sem tryggir betri loftgæði. Aðgengi er að bílageymslu gegn hóflegu mánaðargjaldi. Frábær staðsetning í göngufæri við Laugardalinn og stutt í miðbæ Reykjavíkur.**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög rúmgóð með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, kvartssteini á borði, upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Eldhús: Falleg innrétting sem frágengin er upp í loft. Kvartssteinn á borði. Innbyggður ísskápur og rými fyrir uppþvottavél. Eldhús er í opnu alrými við stofu.
Stofa: Björt með gólfsíðum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengi á rúmgóðar suðvestur svalir. Heimilt er að setja upp svalalokun fyrir þá sem það kjósa.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott og bjart. Gólfsíðir gluggar og góður fataskápur. Harðparket á gólfi.
Geymsla: Góð 6,8 fm geymsla fylgir íbúð í kjallara. Hátt er til lofts.
Bílageymsla: Stór bílageymsla er undir reitnum. Aðgengi er að bílageymslu gegn hóflegu mánaðargjaldi (um 9.000 kr.). Gott aðgengi er að hleðslustöðvum í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
65.800.000 kr.1102 þ./m²
+53,4% á 6 árum
8. október 2020Fyrsta sala
42.900.000 kr.719 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hallgerðargata 3
105 Reykjavík
65.800.000 kr.1.102 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð59,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF25061728Fasteignamat70.600.000 kr.Brunabótamat47.550.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 24 myndir
Upp ↑






















