fasteignasölur.is
Bæjartún 4
1 af 116

Um eignina

 Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna Bæjartún 4, Kópavogi fnr. 205-9402  -TVÆR AUKAÍBÚÐIR. 

Húsið er byggt árið 1984 og er einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin er skráð 348,4 fm samkv. HMS. Efri hæð er skráð 150,7 fm og svo eru tvær íbúðir á neðri hæð sem eru skráðar 45,4 fm og 71,3fm. Sameiginlegt rými á neðri hæð er svo skráð 5,2fm. Bílskúr er skráður 37,9 fm og geymsla undir bílskúr er skráð 37,9 en það rými er óútgrafið og því ekki notað í dag en hægt að grafa það út og nýta. 

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

EFRI HÆÐ:


Aðkoma:  Hellulagt að inngangi í húsið sem og bílaplan fyrir framan bílskúrinn. 

Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur. 

Gestasnyrting: Flísar á gólfi. Hvítur skápur með handlaug. Gluggi er í rýminu. 

Eldhús: Flísar á gólfi. Hvít innrétting með góðu skápaplássi. Helluborð með háfi yfir. Baksturs og örbylgjuofn frá Siemens. 

Þvottahús: Flísar á gólfi. Hillur eru í rýminu. 

Stofa: Parket á gólfi á efri stofu en flísar á hluta stofu sem er neðar. Úr neðri stofu er útgengt á framlóð hússins. 

Svefnherbergi: Eru þrjú talsins og eru öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í öllum svefnhergjum efri hæðar. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi. Innrétting með handlaug. 

Bílskúr: Heitt og kalt vatn. Rafmagn. Inngönguhurð og innkeyrsluhurð. 

Lóð: Falleg og gróin lóð með fljölbreyttum gróðri. 

NEÐRI HÆÐ:

Tvær íbúðir eru á neðri hæð og er sameiginlegt andyri fyrir báðar íbúðir. Stærri íbúðin er skrá 71,3fm og sú minni 45,4. Sjá má fyrirkomulag íbúðanna á teikningu sem er staðsett þar sem ljósmyndir eru af eigninni. Undir bílskúr er einnig rými sem er skráð 37,9 fm sem er útgrafið og nýtt sem geymsla í dag. Hægt að gera inngönguhurð í rýmið frá baklóð hússins.  Gert er ráð fyrir stiga á milli efri hæðar og annarar íbúðar neðri hæðar. 


Bæjartún 4 er stórt og vandað einbýlishús á frábærum stað í Kópavogi með tveimur íbúðum á neðri hæð sem henta til útleigu. Róleg gata en stutt í stofnbrautir í hverfinu. Núverandi eigandi byggði húsið árið 1984.
* þak kantur tekinn í gegn 2024
* þak pússað upp og málað 2023
* upprunalegir gluggar en vel við haldið
* ný rafmagnstafla

Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is.

 - Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 

Bæjartún 4

200 Kópavogur
186.900.000 kr.536 þ./m²
Einbýlishús7 svefn · 4 bað
Byggingarár1984TegundEinbýlishúsStærð348,4 m²Herbergi9InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF205940222Fasteignamat181.650.000 kr.Brunabótamat165.000.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 116 myndir

Upp ↑