fasteignasölur.is
Skagamýri 10
1 af 3

Um eignina

TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU:  3,4 ha íbúða- og landbúnaðarlóð í Skagamýri, Grímsnes- og Grafningshreppi með aðkomu frá Biskupstungnabraut. Landið er skv. deiliskipulagi frá  2012 flatlendur mói og tún og er í um 80 m hæð yfir sjávarmáli. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt, auk búskapar, að reisa eitt íbúðarhús ásamt því að vera með takmarkaða þjónustu og léttan iðnað sbr. veitinga- og gistiþjónustu sem einkum þjónustar ferðaþjónustu eða frístundabyggð. 
Heimilt er að byggja íbúðarhús, allt að 320fm að stærð og útihús samkvæmt framangreindu s.s. hesthús og skemmur allt að 500fm, og gróðurhús af óskilgreindri stærð samkv.deiliskipulagi en þó skal gæta að nýtingarhlutfalli lóðar sem er 0,05. 
Vegur verður að öllum lóðum og heitt og kalt vatn við lóðarmörk. Þá hefur Rarik lagt stofnlögn fyrir rafmagn á svæðið og heimtaug að lóðamörkum lóðanna og kaupandi hverrar lóðar greiðir heimtaugagjald samkvæmt gjaldskrá Rarik. 
Allar nánari upplýsingar veita Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is 


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Skagamýri 10

805 Selfoss (dreifbýli)
18.000.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF25106794Fasteignamat79.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 3 myndir

Upp ↑