fasteignasölur.is
Muruholt 2 - leiga
1 af 31

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna til langtímaleigu rúmgott og vel skipulagt einbýlishús að Muruholti 2, Garðabæ.

Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð með bílskúr sem búið er að breyta í aukaíbúð, fjórum svefnherbergjum, þremur baðherbergjum, stofu, borðstofu og sjónvarpsholi ásamt glæsilegri þvottahússaðstöðu. Eignin er skráð samkvæmt HMS 190,3m2 auk 51,7m2 bílskúr/aukaíbúð eða til samans 242m2. Húsið stendur á rúmgóðri hornlóð í botngötu á Álftanesi. Örstutt er á golfvöllinn. Húsið er nýlega málað og mikið endurnýjað. 

Nánari lýsing:

Innkeyrslan stimpluð steypa með hitalögnum.
Forstofa með teppi við inngang, parketi og stórum HTH fataskápum með speglahurðum.
Eldhús með nýlegri og afar fallegri HTH innréttingu úr svartri eik. Mikið skápapláss. Eyja úr kvarts-steini, stórt span helluborð frá AEG. Sérhönnuð ljós yfir eyjunni sem hægt er að hækka og lækka sem stjórnað er með appi. Sökklar á eyjunni eru skúffur sem gefur aukið geymslupláss. AEG ofnar í vinnuhæð, klæddir ísskápar með frysti og klædd AEG uppþvottavél.
Borðstofan er stór og björt þar sem útgengt er á stóra verönd með útieldhúsi. Veröndin er upplýst með Hue ljósum.
Stofan er stór og rúmgóð með sérhannaðri bókahillu sem Berglind Berndsen innanhússhönnuður hannaði.
Svefnherbergisgangur.
Sjónvarpshol. Á svefnherbergisgangi er sjónvarpshol með sérhannaðri bókahillu.
Herbergi. Þrjú jafnstór barnaherbergi með HTH fataskápum og parketi á gólfi.
Hjónherbergið er stórt með fataherbergi með hillum og fataslám. Innaf fataherberginu er sérbaðherbergi. Baðherbergið er með sturtu og fallegri HTH innréttingu úr svartri eik og salerni. Útgengt á verönd til suðurs.
Þvottahúsið er rúmgott með þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur. Stórt þurrkherbergi með skápum. Útgengt í garðinn.
Ris. Stigi er sóttur til að fara upp í einangrað ris sem nýtist vel sem stór geymsla.
Garðurinn er afar fallegur með stórri verönd og skjólveggjum. Heitur pottur. Útieldhús með skemmtilegri ljósastillingu. Upphituð geymsla ásamt kaldri geymslu.
Bílskúrinn er með sérinngangi og er hann innréttaður sem aukaíbúð með baðherbergi (með sturtu), innréttingu og salerni. Fallegur og sérhannaður HTH fataskápur. Hluti af bílskúrnum er notaður sem geymsla en þar er mikið skápapláss og skóhillur frá gólfi upp í loft. Í rýminu er jafnframt innbyggður frystir, vínkælir og þurrkskápur. Búið er að klæða loftið sem gefur hlýja lýsingu.

Um er að ræða mikið endurnýjað og fallegt hús sem stendur á stórri hornlóð með útieldhúsi, heitum potti, stórri verönd og fallegum garði. Stutt er á golfvöllinn ásamt skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og íþróttamiðstöð.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Muruholt 2 - leiga

225 Garðabær
950.000 kr.4 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 3 bað
Byggingarár2006TegundEinbýlishúsStærð242 m²Herbergi6BílskúrFasteignanúmerF22981801Fasteignamat161.050.000 kr.Brunabótamat168.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑