fasteignasölur.is
Sigtún 27
1 af 4

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is  - kynnir til sölu - Sigtún 27 Patreksfirði - Um er að ræað steinsteypt parhús byggt árið 1977. Í húsinu er forstofa, eldhús, þvottahús, búrgeymsla, rúmgóð stofa, svefnálmugangur, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara eru svo geymsluherbergi sem er samtals 53 m² rými. 

Nánari lýsing: 
Forstofa með flísum á gólfi og fataskápur, á upphaflegum teikningum var gert ráð fyrir salerni í hluta forstofu og ættu þ ví lagnir fyrir það að vera til staðar.
Opið eldhús með hvítri innréttingu (ca 1995), eldavél, dúkur á gólfi.
Búrgeymsla með hillum, þvottahús með útgangi að framanverðu, flísar á gólfi. Hleri upp á risloft í þvottahúsi.
Stór opin stofa og borðstofa með teppi á gólfi, útgengt á sólpall. 
Svefnálmugangur með teppi á gólfi,
Þrjú  svefnherbergi (barnaherbergi) með teppi á gólfum.
Hjónaherbergi með parketi, stór skápur þar.
Baðherbergi með innréttingu, flísar á gólfi veggjum, baðkar með sturtu.

Í kjallara eru geymslur, veggir og gólf ófrágengið.
Að utanverðu er húsið hraunað að hluta og einangrað og klætt með steni plötum. Þakjárn er upprunalegt en lítur ágætlega út.
Bílaplan er malarborið. Lóðin er skráð 987 fm leigulóð.

Eignin Sigtún 27 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 212-3989, birt stærð 191.0 fm.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Sigtún 27

450 Patreksfjörður
52.000.000 kr.272 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1977TegundRað-/parhúsStærð191 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21239891Fasteignamat47.750.000 kr.Brunabótamat98.450.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Vestfjarða
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 4 myndir

Upp ↑